10.2.2008 | 22:29
† Fyrir góðan vin og fjölskyldu hans
Í gær lést góður samferðamaður Gunnar Ingi Ingimundarson eftir tveggja ára baráttu við illvígan sjúkdóm. Ég minnist góðvildar hans og skemmtilegs hláturs. Nú fáum við þess ekki notið lengur.
Síðustu tvö ár hafa verið fjölskyldu Gunnars Inga erfið fjárhagslega en hvorugt þeirra hjóna hefur getað unnið og aflað tekna til framfærslu fjölskyldunnar. Því vil ég minna á söfnunarreikning til styrktar fjölskyldunni.
Reikningurinn er: 1190-05-004754 kt. 530206-1730.
Vinsamlegast athugið að millifært verður af þessum reikningi yfir á reikning fjölskyldunnar. Framlög hvers og eins munu því ekki verða gerð opinber fjölskyldunni.
Blessuð sé minning Gunnars Inga
Megi Guð styrkja og vera með fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 11.2.2008 kl. 09:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.