Vegamál á Ströndum

Get ekki látið hjá líða að skrifa smá um vegamál í Strandasýslu enda vona ég að Kristján Möller fari um sýsluna áður en að næstu fjárlög fara í gegnum þingið. Það er alveg augljóst mál að malbikið sem er í Bitrunni er stórhættulegt vegfarendum enda er það bæði holótt og farið að kvarnast úr köntunum. Ég kvíði því í hvert skipti að mæta flutningabílum á þessum stað. Sem betur fer er hætt að ég held að leggja einungis eins og hálfsbílbreidd malbiksvegi - þeir eru nú bara lífshættulegir. Svo er það vegurinn frá Bakkagerði norður í Bjarnafjörð. Það þyrfti að lagfæra hann heilmikið - ég er alls ekki að biðja um malbik bara að það sé sett á hann möl svo að ekki sé verið m.a. að keyra á klöppum og "þvottabrettum". Mér skilst að Einar Oddur Kristjánsson hafi afþakkað boð um að keyra með hann um þennan veg í vor. Fjármagn hefur víst ekki fengist í þennan veg sl. ár. Ekki gott mál. Ég vorkenni nú bara heimilisfólkinu í Odda að keyra þennan veg tvisvar á dag - að ógleymdum póstmanninum.

Nú er Tröllatunguheiði orðin fær. Fór hana í dag. Alveg prýðileg. Alltaf gaman að fara þann veg - tja, eða eins og færðin var á heiðinni í dag.  


Heima er best!

Búin að vera í 10 daga fríi. Mér var treyst fyrir prinsessunni í fjölskyldunni þar sem að foreldarnir voru á kórferðalagi með Kvennakórnum Norðurljósum frá Hólmavík í Edinborg og síðan fóru þau að mennta sig í Reykjavík og á Akureyri. Fyrstu daganna vorum við hér í bænum enda var mæting á miðstjórnarfund Framsóknar sl. sunnudag. Fundurinn var mjög góður og gaman að sjá félaganna. Eftir fundinn fórum við svo norður á Drangsnes enda best að vera þar og svo er prinsessan í leikskóla.

Af sjálfsögðu var yndislegt að vera heima á Drangsnesi. Veðrið hvergi betra. Fórum við í sund, til Hólmavíkur, kíktum í heimsókn til afa á Hrófbergi, skoðuðum hestana og mýs. Sem sagt dúndurstuð.

Nóg að gera í Fiskvinnslunni Drangi og smábátarnir að fiska vel.

Ferðaþjónustan hjá Völku og Bjössa fer stækkandi. Nú eru þau að útbúa stærðarinnar kaffihús. Það vantar ekki drifkarftinn á þeim bænum.

Í gær voru Agnes Sif, Inga og Valgerður fermdar í kapellunni. Mikil hátíð í þorpinu af því tilefni.

Nú er það vinnann sem tekur völdin á morgun. Hlakka til enda nóg að gera í litlu fyrirtæki LoL


Ferð dagsins

Fór í vinnuferð til Víkur í Mýrdal í dag. Kom við á Selfossi og náði í einn vinnufélaga minn, Steina. Þegar að við vorum rétt komin framhjá aðleggjaran að Laugadælum þá sá ég puttaferðalang. Ákvað að vera góð og bjóða honum far enda rigning og rok. Kom í ljós að maðurinn var Frakki og búinn að vera hér á landi í 15 daga (sýndi okkur puttanna þrisvar sinnum uppSmile ). Menn kunna að bjarga sér. Táknmálið var mikið notað í ferðinni. Greyið skyldi ekki mikið í ensku og við ekki talandi á frönsku og því var þetta ferðalag ansi spaugilegt. Þeir sem þekkja mig þá átti ég í mestu vandræðum með að skella ekki uppúr þegar að Steini var að segja honum til m.a. með hve lengi væri verið að ganga  í Landmannalaugar og á Heklu. Hann var mikið hrifin af Lúpínunni á Skógasandi og hvað "Meee" vera hrifið af því.   Maðurinn ætlaði að fara til Mývatns. Ég vona að hann hafi fengið far áfram frá Vík. Annars voru margir ferðamenn í Vík í dag.

P & P

Þá er löngunin til að deila með ykkur kæru lesendur því sem ég er að hugsa og  gera þessa daganna.

Pólitíkin
Flokkurinn minn - Er leið yfir því að Jón skuli hafa ákveðið að segja af sér. Þakka Jóni fyrir ánægjuleg kynni. Guðni er þá orðinn formaður - er alveg ágætlega sátt við það. Á miðstjórnarfundi á næstu helgi fáum við sem erum í miðstjórn að kjósa okkur varaformann. Ég vil sjá nýtt andlit í þeim stól. Andlit sem eigi eftir að hjálpa okkur grasrótinni við að byggja upp. Tel að það þurfi alls ekki að vera þingmaður - heldur hæfur einstaklingur til að taka við hlutverkinu. Við eigum nóg af framtíðarfólki í flokknum það er ekki spurning. Aðeins eitt framboð hefur komið fram til varaformanns. Framboð Valgerðar Sverrisdóttur.
Ríkisstjórnin - La, la. Margt kom á óvart við ráðherravalið. Nú er að bíða og sjá. Við framsóknarmenn munum láta rödd okkar hjóma vel og málefnalega á þeim tíma sem að þessi ríkisstjórn mun vera við völd.


Prívatlífið
Sumarfríið er að koma á hreint. Fröken Sigurbjörg er að koma í bæinn í pössun til frænku sinnar. Margt planað á þeim tíma. Nokkrir dagar verða svo teknir í kringum Bryggjuhátíð (21. júlí) og sextugsafmæli föður míns. Alþjóðaráðstefna Ladies Circle í Tallin Eistlandi í endaðan ágúst og svo er það gönguferð á Mallorka í september með fjallhressum vinnufélögum.
Ræktin og vinnan eru á sínum stað - alltaf jafn skemmtileg.


Til hamingju frænka

Má til með að óska frænku minni henni Önnu Birnu Ragnarsdóttur hómópata til hamingju með að vera fyrsti græðarinn sem hefur fengið skráningu samkvæmt skráningarkerfi Bandalags íslenskra græðara sem er viðurkennt af heilbrigðisvöldum.  Rakst á þessa flottu myndir af athöfninni á www.siv.is

Sjálf hef ég notið leiðbeininga frá Önnu Birnu og mæli hiklaust með aðferðum græðara í þeim tilfellum sem þær eiga við.

p.s. Ragnar! til hamingju með daginn.


mbl.is Fyrsti græðarinn fær skráningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margrét, Ingiríður, Henríetta eða...

Það er alltaf gaman þegar að það fjölgar hjá konungsbornum fjölskyldum. Í dag fæddust þeim Maríu og Friðriki dóttur og er sú stutta þriðja í röðinni til að taka við embætti ömmu sinnar sem leiðtogi danska ríkisins.

Danskir og norskir vefmiðlar eru þegar farnir að velta því fyrir sér hvað prinsessan á að heita. Hefur verið nefnt Margrét - í höfuðið á Margréti drottningu, Ingiríður - eftir langömmu og Henríetta eftir móðurömmu sinni. Mér finnst nú líka vel hæfa að daman fái nafnið Elísabet í höfuðið á Betu drottningu en hún er nú 81. árs í dag. Til hamingju með afmælið!


mbl.is Fjölgar í dönsku konungsfjölskyldunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundur á Hólmavik á morgun 21. apríl kl. 11

Efstu menn á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi verða með framboðsfund að Cafe Riis á morgun 21. apríl kl.11. Magnús Stefánsson, Herdís Sæmundardóttir, Valdimar Sigurjónsson og Svanlaug Guðnadóttir verða öll á staðnum og tala um stefnumál flokksins og áherslur í kjördæminu.

Ætlaði að vera með þeim á svæðinu en vegna anna í flokksstarfinu verð ég að stjórna verkefnum mínum héðan úr bænum. Sem er líka skemmtilegt. Tja annars væri ég nú ekki í þessu.

Vonast til að sem flestir láti sjá sig á Cafe Riis.


Glæsileg samgöngubót

Í dag er vert að gleðjast yfir nýjum vegi um Arnkötludal sem og því ef nota á mismunin á milli áætluninar og þess verðs sem skrifað var undir í aðrar samgöngubætur í Strandasýslu.

Kíkið á umfjöllun á Strandir.is um málið

 Smile


mbl.is Skrifað undir verksamning um nýjan Tröllatunguveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðamennska á Drangsnesi

Nýtt og glæsilegt gistihús er risið á Drangsnesi. Óska Bjössa og Völku innilega til hamingju með húsið. Það er sko sannarlega kraftur í þeim. Í fyrra buðu þau uppá gistingu í leiguhúsnæði en nú eru þau komin með sitt eigið gistihús.  Auk þessa bjóða þau upp á reglulegar siglingar út í Grímsey.

Sjá myndir á Strandir.is

Auk þessa gistimöguleika má benda á Gistiþjónustu Sunnu sem er einnig á Drangsnesi.


Freyja og frændi

Má til með að óska lögregluvarðstjóranum frænda mínum á Blönduósi til hamingju með styrkin sem að hann og hundurinn hans Freyja fengu nú á dögunum. Fíkniefnahundurinn Bella sem lést í vetur hafði svo sannarlega sinnt sínu hlutverki með sóma. Frændi er búinn að fá Freyju til að taka við því mikilvæga forvarnarhlutverki sem góður fíkiniefnaleitarhundur er.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband